6 flokkur karla hjá Fram

í knattspyrnu

26.01.2012 14:18:31 / fram6flokkur

sameiginleg æfing laugardag, frí á föstudag

Sælir strákar


Það er æfing í dag fimmtudag í Grafarholti völlurinn er sæmilegur.

Á morgun föstudag er frí bæði í Safamýri og Grafarholti en í staðinn ætlum við að taka sameiginlega æfingu í Grafarholti á laugardaginn kl. 10:45 - 12:00


Steinar


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.01.2012 10:52:46 / fram6flokkur

Æfing fellur niður í dag 24. jan

Sæl Því miður verðum við að fella niður æfingu í Grafarholti í dag en völlurinn er á kafi í snjó Steinar

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2012 13:39:57 / fram6flokkur

Æfingar falla niður í dag 20. jan

Sælir strákar

Við verðum því miður að fella niður æfingar í dag vegna veðurs (bæði í Grafarholti og Safamýri).

Liðin fyrir Njarðvíkurmótið eru komin inn og eru hér fyrir neðan.

Sjáumst á sunnudaginn


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2012 11:47:15 / fram6flokkur

Njarðvíkurmótið liðin

Sælir strákar

Hérna eru liðin fyrir sunnudaginn


Víkingadeildin mæting kl: 8:45
Sævar, Fannar Örn, Halldór Daði, Daníel, Kári Valur, Ottó, Tindri og Ernest

Stapadeildin mæting kl. 11:00
Guðmundur Kári, Leó, Gunnþór, Tryggvi, Jón Jökull, Jakob Logi, Viðar og Viggó

Reykjanesdeildin mæting kl. 13:10
Othar, Börkur, Sturla, Jón Bjartur, Jóel, Mikael Tentai, Dagur og Franz

Eldeyjardeildin mæting kl. 14:00
Árni, Ástþór, Kristján, Anton, Mikael Egill, Gulli, Einar Gísli og Steinar

Það kostar 1500. kr á mann sem greiðist á staðnum, gott væri að fá foreldra úr hverju liði til að taka við greiðslum og koma til mótsstjórnar.
Verðlaunaafhending og pizza í lok móts.

Við verðum með búninga fyrir þá sem ekki eiga og muna eftir legghlífunum.

Hérna getið þið séð leikjaplanið http://www.umfn.is/Knattspyrna/Njardvikurmotin/

ATH.
Við ætlum að reyna taka upp leiki hjá hverju liði. Pétur pabbi hans Gulla ætlar að taka upp leiki fyrir Eldeyjar- og Reykjanesdeildina, foreldrar drengja í Víkinga- og Stapadeildinni sem eiga vél og geta tekið upp leiki fyrir þau lið endilega gefið sig fram hér á blogginu eða hafið samband við Steinar eða Vigga


Sjáumst hressir í Reykjaneshöllinni á sunnudaginn.


Steinar og Viggi

» 0 hafa sagt sína skoðun

20.01.2012 11:33:05 / fram6flokkur

Æfingar falla niður

Strákar Æfingar hjá grafarholtinu og safamýri falla niður í dag vegna veðurs. Þið eigið samt að fylgjast með á blogginu í dag og á morgun, það getur verið að við fáum æfingu inni í íþróttahúsinu í safamýri á morgun (laugardag). Kv. þjálfarar

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2012 12:16:51 / fram6flokkur

æfing fellur niður

Æfingin í safamýrini í dag fellur niður vegna veðurs, í staðinn verður inni æfing í framhúsinu kl 15:00.  Kv. Þjálfarar

» 0 hafa sagt sína skoðun

12.01.2012 13:27:34 / fram6flokkur

Njarðvíkurmótið 22. jan - Skráning / Boltasnillingur

Njarðvíkurmótið fer fram í Reykjaneshöllinni sunnudaginn 22. janúar. Það kostar 1500. kr á mann þeir sem ætla að vera með skrá sig í kommentakerfið Nánari tímasetningar fyrir hvern og einn koma svo í næstu viku. Við minnum svo á að laugardaginn 4. febrúar ætlum við kíkja í heimsókn í boltasnilling í Kópavogi sjá hér http://boltasnillingur.is/ nánar um það síðar Steinar og Viggi

» 41 hafa sagt sína skoðun

12.01.2012 12:38:07 / fram6flokkur

Grafarholtið

Strákar það verður æfing í dag kl 15:30 allir að mæta sprækir og vel klæddir muna auka sokkar og vera með húfu og vettlinga. Kv. Þjálfarar

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.01.2012 10:31:31 / fram6flokkur

Grafarholtið

Strákar æfingin í dag fellur niður, hitinn er í botni en það er erfitt að bræða svona mikið magn af snjó eins og er núna. Við vonum bara að við náum að hafa æfingu á fimmtudag. Kv. þjálfarar

» 0 hafa sagt sína skoðun

09.01.2012 21:11:05 / fram6flokkur

Æfingin á morgun hjá Grafarholtinu

Strákar þið verðið að biðja foreldra ykkar að fylgjast vel með á blogginu á morgun. Eins og staðan er núna niðri á velli þá er of mikill snjór, en hitinn er í botni og við vonum að hann nægi til að bræða snjóinn. Við munum láta ykkur vita hvort það verði æfing fyrir hádeigi á morgun. Kv. Þjálfarar

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.01.2012 14:42:28 / fram6flokkur

Mæta vel klæddir (foreldrar tjékka á æfingargjöldum)

Strákar við þurfum að bæta okkur í því hvernig við erum að mæta klæddir á æfingar. Alltof margir eru að mæta illa klæddir t.d. ekki með húfu og vettlinga eða bara á peysuni sem gengur bara ekki lengur. Núna á nýju ári ætlum við að byrja klæða okkur betur, við mætum með húfu, vettlinga(ÞYKKA) og með buff um hálsinn eða í bol með kraga sem ver hálsinn. Við mælum svo líka með því að þið séuð í GAMMSÍUM og helst í tvennum sokkum eða einum þykkum. Að mæta með auka sokka og ekki labba í takkaskónum í snjónum er líka mikilvægt, það eru komnir klefar og getið þið núna skipt um og geymt dótið ykkar þar. Ef þið eruð að koma labbandi á æfingar þegar það er kalt úti þá eigið þið að labba í úlpu sem þið getið svo geymt í klefanum. Strákar ég vona bara að þið hlýðið þessum reglum svo við þurfum ekkert að tuða meira um að þið séuð að koma illa klæddir á æfingar, okkur þjálfurunum mun líða betur með það og ykkur líka því það er ekkert gaman að spila fótbolta þegar mönnum er SKÍT KALT. Við erum líka að fara að bæta inn einni auka æfingu í hverjum mánuði þar sem verður gert eitthvað annað en að spila fótbolta t.d pizzu partý eða bíó og fleira. Við erum líka að byrja velja leikmann mánaðarins sem við kynnum betur á æfingum en hann má allanvega ekki klikka á því að klæða sig eftir veðri. það er síðan mót sem verður í Njarðvík þann 22.janúar, en ekki skrá sig samt á þetta blogg. Það verður líka mætingar keppni núna í hverjum mánuði milli Safamýri og Grafarholts, það hverfi sem mætir betur á æfingar í hverjum mánuði fær einhver verðlaun. Eftir fyrstu æfinguna þá er Grafarholtið að tapa þessu, strákar í holtinu þið verðið að fara bæta ykkur, og mæta betur, ekki bara á eina æfingu í viku heldur allar. Síðan ef þið komist ekki á æfingar þá eigið þið að biðja mömmu og pabba að senda mail eða sms til þjálfara.

» 4 hafa sagt sína skoðun

03.01.2012 10:58:27 / fram6flokkur

Æfingar hefjast á ný

Æfingar hjá grafarholti hefjast í dag kl 15:30 (æfingartaflan er sú sama og fyrir jól) Safamýrin byrjar að æfa á morgun kl 16:00 (æfingartaflan er sú sama og fyrir jól) Kv Viggi og steinar

» 0 hafa sagt sína skoðun

30.11.2011 17:38:14 / fram6flokkur

Breyting á fimmtudags- og föstudagsæfingum

Sæl Vegna vandræða með nýja völlinn okkar í Úlfarsfelli verðum við að gera nokkrar breytingar á æfingum á næstunni. Æfingin á morgun fimmtudag í Grafarholti verður inn í Ingunnarskóla kl. 18:15 - 19:15 Á föstudaginn verður sameiginleg æfing í Safamýri kl. 16:00 - 17:00 Rúta fer frá Ingunnarskóla kl. 15:30 og kemur hún við bæði í Sæmundarskóla og Dalskóla Vonandi kemur þetta ekki sök, við biðjum ykkur svo að fylgjast vel ef það verða einhverjar breytingar í næstu viku Kv. Steinar og Viggi

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.11.2011 13:49:06 / fram6flokkur

Ekki æfing í dag í Grafarholti

Sæl Það er ekki æfing hjá 6. flokki í Grafarholti vegna snjós á vellinum. Hitinn komst á grasið í gærkvöldi en hann hefur ekki náð að vinna á þeim snjó sem hafði safnast á völlinn. Steinar og Viggi

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.11.2011 13:34:50 / fram6flokkur

Getraunakaffi FRAM

Getraunakaffi FRAM kl 10 á laugardögum i vetur í Grafarholti

Getraunakaffi FRAM verður á laugardögum kl 10:00 til 12:00 en þar eru öllum frömurum velkomið að kikja við í félagsaðstöðu okkar í Grafarholti(á skrifstofu fram fyrir aftan sjoppuna) og spá í leiki helgarinnar í góðum félagsskap. Sætabrauð verður á boðstólnum og heitt á könnunni.

Getraunarleikurinn er farinn af stað og eru leikreglur eftirfarndi.
2 saman í lið.
1 stig fyrir rétt úrslit samkvæmt spá.
Í vor höldum við svo uppskeruhátíð þar sem verða veitt glæsileg verðlun fyrir efstu sætin.
Dæmi um verðlaun, 
Utanlandsferð 
Hótelgisting
Út að borða 
Vöruúttektir
Errea fatnaður
Coca Cola 

Þátttökugjald á lið er kr. 5.000,- fyrir allann veturinn.


Kv Knattspyrnideild Fram

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Hugsun dagsins
Ég mæti ekki á æfingar bara til að mæta á æfingar. Ég mæti á æfingar til þess að verða betri í fótbolta. Þessvegna legg ég mig alltaf 100% fram á æfingum.
Heimasíður
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Heimsóknir
Í dag:  296  Alls: 75715